Wednesday, December 15, 2010

Jólafrí og Actavismót Hauka. (UPPFÆRT!)

Síðustu æfingar fyrir jól klárast í þessari viku (sunnudag fyrir þá sem eru á æfingum þá).

Æfingar hefjast að nýju þriðjudaginn 4. desember.

Við erum svo búin að skrá alla minniboltaflokka á Actavismót Hauka sem fer fram 8-9. janúar. Mótið er með svipuðu sniði og Nettómótið. Þátttökugjald 1.800 krónur.  Nánar um það síðar

UPPFÆRT: ákveðið að senda liðin ekki í Actavismótið. Förum á póstmót Breiðabliks í staðinn

Wednesday, December 1, 2010

Dagskrá á jólamóti nettó

Dagskrá fyrir helgina komin. Spilað á laugardegi.
Ath. að dagskráin getur breyst.

Reynum að vera mætt amk. 20. mínútum fyrir fyrsta leik.

Þátttökugjald 2500 krónur á mann (ÍR ákvað að fella niður 5000 króna þátttökugjald hvers félags).
Gjald er greitt til þjálfara fyrir fyrsta leik.

7 ára stúlkur/strákar laugardagur
Keflavík
Haukar 1
Haukar 2
Haukar 3
Valur
ÍR

Völlur 2:
 KL 09.00  ÍR -  Valur
 KL 09.25  Haukar 1 – Keflavík
 KL 09.50  Haukar 2 – Valur
 KL 10.15  Haukar 3 – ÍR
 KL 10.40  Keflavík – Valur
 KL 11.05  Haukar 2 – ÍR
 KL 11.30  Haukar 1 – Valur
 KL 11.55  Haukar 3 – Keflavík
 KL 12.20  Haukar 2 – Keflavík
 KL 12.45  Haukar 1 – ÍR
 KL 13.10  Haukar 3 - Valur
 KL 13.35 ÍR – Keflavík

Tuesday, November 30, 2010

Nettómót ÍR helgina 4-5 desember.

JÓLAMÓT NETTÓ OG ÍR

Helgina 4.-5. desember n.k. mun körfuknattleiksdeild ÍR standa fyrir stórmóti

í samvinnu við Nettó. Mótið er fyrir yngstu iðkendurna, drengi og stúlkur, sem

fædd eru 1999-2004. Keppt verður í Íþróttahúsinu við Seljaskóla.

Leikið verður 2 x 10 mínútur og verður leiktíminn ekki stöðvaður. Mótið

mun fara fram á tveimur völlum í senn (spilað 5 á 5). Stigin verða ekki talin

enda allir komnir í jóla-keppnisskap. Hver hópur mun spila 3-4 leiki annan hvorn daginn og á það að klárast á 3-4 tímum.

Við í Val ætlum auðvitað ekki að láta okkar eftir liggja og förum með lið í nokkrum aldurshópum. Aldurshóparnir eru:

6-7 ára kk/kvk (Bloggsíða: http://valurkarfamb6-7.blogspot.com/)

8-9 ára kk (Bloggsíða: http://valurkarfamb8-9.blogspot.com/ )

10-11 kvk (Bloggsíða: http://valurkarfambkv.blogspot.com/ )

10-11 kk (Bloggsíða: http://valurkarfamb10-11.blogspot.com/ )

Við munum tilkynna leikdag og leiktíma á bloggsíðunum vonandi í seinasta lagi á fimmtudag.

Valur borgar engin mótsgjöld yngri flokka utan Íslandsmóta og því mun gjaldið deilast niður á þátttakendur. Þátttökugjald á hvern iðkanda er því krónur 3.000 sem ætti að vera rúmlega nóg fyrir gjaldinu. Afgangurinn mun ganga upp í mótsgjald næsta móts fyrir þá sem taka þátt í þessu móti. Gjaldið skal greiða til þjálfara á leikdegi fyrir fyrsta leik.

Minni alla á að verða sér út um búninga í Hummel búðinni milli kl. 16:00-18:00 í þessari viku.

Allar nánari upplýsingar verða settar inn á bloggið reglulega fyrir helgina.

Ef einhverjar spurningar eru sendið þá póst á Lydur06@ru.is

Thursday, August 19, 2010

ÆFINGAR HEFJAST AFTUR

Jæja, þá hefjast æfingar aftur eftir sumarfrí.

Í vetur munum við bjóða upp á nýjung í þjálfun barna 6-7 ára. Ef þið skoðið æfingatímana hér efst á síðunni hægra megin þá getið þið séð að á fimmtudögum bjóðum við upp á fjölgreinaæfingar.

Þessar æfingar fela í sér að öll börn á aldrinum 6-7 ára æfa á sama tíma (karfa, handbolti og fótbolti) og verður börnunum skipt upp í hópa þar sem þau munu æfa í 20 mínútur í senn á hverri stöð. Öll börnin fá því að kynnast öllum þremur íþróttagreinum og teljum við þjálfarar og stjórnarmenn í Val að það muni koma börnunum til góða að kynnast öllum þremur íþróttagreinum.

Það er okkur í körfunni sönn ánægja að tilkynna að öll börn sem skrá sig í körfuboltann fá körfubolta að gjöf til eigna frá körfuknattleiksdeildinni um leið og æfingagjöld hafa verið greidd.

Tékk

Tékk