Thursday, August 19, 2010

ÆFINGAR HEFJAST AFTUR

Jæja, þá hefjast æfingar aftur eftir sumarfrí.

Í vetur munum við bjóða upp á nýjung í þjálfun barna 6-7 ára. Ef þið skoðið æfingatímana hér efst á síðunni hægra megin þá getið þið séð að á fimmtudögum bjóðum við upp á fjölgreinaæfingar.

Þessar æfingar fela í sér að öll börn á aldrinum 6-7 ára æfa á sama tíma (karfa, handbolti og fótbolti) og verður börnunum skipt upp í hópa þar sem þau munu æfa í 20 mínútur í senn á hverri stöð. Öll börnin fá því að kynnast öllum þremur íþróttagreinum og teljum við þjálfarar og stjórnarmenn í Val að það muni koma börnunum til góða að kynnast öllum þremur íþróttagreinum.

Það er okkur í körfunni sönn ánægja að tilkynna að öll börn sem skrá sig í körfuboltann fá körfubolta að gjöf til eigna frá körfuknattleiksdeildinni um leið og æfingagjöld hafa verið greidd.

Tékk

Tékk